Viðtöl í Selinu og klúbbastarf
03.02.2012
Í vikunum 6.-10. feb og 13.-17. feb bíður Selið upp á foreldraviðtöl fyrir þá foreldra sem vilja nýta sér það. Þessi viðtöl fara fram fyrir hádegi þrið, mið og föstudaga milli 9-12. Biðjum við þá sem vilja nýta sér þetta að senda okkur póst. Viðtölin verða ca. 20 min.
Klúbbastarfið okkar hefst að nýju í næstu viku og verður gaman að sjá hvernig það gengur. Nýir klúbbar verða í boði eins og Skartgripaklúbbur, Sögusmiðja og Teikniklúbbur (þar sem kennd verður teikning).
Kv. Selið