Fréttir og tilkynningar
Unicef | 07.05.2012
Unicef þrautirnar gengu vel og börnin voru dugleg að safna áheitum á fimmtudaginn í síðustu viku. Í þessari viku halda umslögin áfram að skila sér inn í Skýjaborgir og öll framlög vel þegin. Börnin eru auðvitað mjög forvitin að vita hvað verður um peningana og þess vegna er góð hugmynd að skoða he...
Opið hús í góða veðrinu | 23.04.2012
Síðasta föstudag skein sólin í heiði og yljaði okkur í Skýjaborgum með geislum sínum. Barnamenningin blómstraði út um allt og yljaði okkur einnig um hjartaræturnar. Foreldrar mættu á opið hús og glöddust með okkur yfir kaffibolla og barnalist. Myndir verða settar á heimasíðuna síðar.
Sumar 2012 | 23.04.2012
Nú er búið að opna sumarvef ÍTR og er slóðin http://sumar.itr.is. Skráning í sumarstarfið er á http://rafraen.reykjavik.is
Páskafríið var yndislegt | 11.04.2012
Þrír heilir dagar voru í páskafríinu í Skýjaborgum þetta árið. Dagskráin var skemmtileg að vanda með páskaeggjabingói, bakstri, föndri skautaferð og keilu. Það kom líka mjög skemmtilegur gestur í heimsókn en það var stór og litríkur páfagaukur. Myndirnar tala sínu máli, skoðið páskafrí 2012 á heim...
Nýir klúbbar | 28.03.2012
Nýir klúbbar eru komnir í gang í Skýjaborgum. Uppsprettuklúbbur sem Hildur stjórnar á miðvikudögum snýst um að sá fræjum og fylgjast með uppsprettunni. Þórdís er að fara af stað með myndlistaklúbb og Madda er komin á ról með hreyfimyndaklúbb.
Skýjaborgir heimsækja stjörnuverið | 14.03.2012
Skýjaborgir fengu pláss fyrir tvo hópa í stjörnuverinu sem statt er í Frostaskjóli þessa viku. Við settum það upp í valinu fyrir mánudag og þriðjudag og börnin löbbuðu í Frostaskjól og fengu frábæra leiðsögn hjá honum Snævari um víðáttur alheimsins.
Mannréttindin í síðustu viku | 14.03.2012
Síðasta vika í Skýjaborgum snerist um að fræða börn um mannréttindi. Rætt var um mannréttindasáttmála SÞ og aðallega barnasáttmálann. Farið var í leiki sem kenna börnum að setja sig í spor annarra og þar á meðal var appelsínuleikurinn.
Starfsmannabreytingar | 07.03.2012
Miklar breytingar hafa orðið á starfsmannahópnum í Skýjaborgum síðustu vikurnar. Þeir sem hafa hætt eru Eyja, Svana, Sunna og Erna og við sjáum gríðarlega eftir þeim.
Fréttabréf | 17.02.2012
Febrúarfréttabréf 2012 er komið á heimasíðu Skýjaborga.
Magnað myrkur | 10.02.2012
Vetrarhátíð 2012 ( www.vetrarhatid.is ) hefur yfirskriftina MAGNAÐ MYRKUR og höfum við verið að skemmta okkur hér í Skýjaborgum með þessu þema. Við höfum búið til svakalega magnað myrkur hér og leikið okkur í því. Á þriðjudaginn fórum við í kjallara og lékum okkur í algjöru niðamyrkrki og tókum my...