Sæl veriði og gleðilegt ár
11.01.2012
Sæl veriði og gleðilegt ár.
Hafa ber í huga nýja gjaldskrá frístundaheimila í Reykjavík fyrir árið 2012 sem tekur gildi 1. feb. Viljum við biðja foreldra um að kynna sér þau mál (t.d. þarf að gera breytingar fyrir 15. jan svo þær taki gildi 1. feb).
Heill dagur verður í Undralandi þriðjudaginn 24. jan, en það er dagur foreldra- og nemendasamtala í Grandaskóla.
Skila þarf skráningarblöðum fyrir föstudaginn 20. jan.
Þeir sem eru með Gmail hafa átt í veseni með að fá fjöldapóstinn frá Undralandi en sá póstur á það til að lenda í rusl-hólfinu eða í spam-hólfinu í gmailinu. Viljum við einnig minna foreldra á að láta okkur vita ef byrjað er að nota nýtt e-mail, og breyta því inn á Rafrænni Reykjavík.
Annars erum við bara bjartsýn og jákvæð, látum þetta veður ekkert fara í taugarnar á okkur :)
Kv. Undrafólk